„Ágætis veður“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 174 tonn og uppistaða aflans var þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum í kantinum vestan við Hala og á Víkurál. Veiðarnar gengu nokkuð ágætlega og ágætis veður, utan við einn dag,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter