„Ágætis veiði“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 161 tonn og uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Ágúst Guðmundsson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum fimm daga á veiðum. Byrjuðum vestur í Kanti í ágætis veiði af blönduðum afla, þorski, ufsa og karfa. Síðan brældi og tók þá svolítinn tíma að finna þorskinn aftur en enduðum í ágætri þorskveiði á Strandagrunni. Veðrið var gott, fyrir utan rúman sólarhring í norðaustan stormi,“ sagði Guðmundur Ágúst.

 

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter