„Árið 2022 byrjar ágætlega“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er 211 tonn, uppistaða aflans er þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á veiðum í Kantinum vestan við Halann og á Halanum. Veiðarnar gengu mjög vel, árið 2022 byrjar ágætlega. Það var ágætt veður fyrsta sólarhringinn, svo var skítabræla eftir það,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter