Arnar HU 1 er á landleið með um 588 tonna afla og er væntanlegur að höfn um kl 05:00 í nótt. Aflinn samanstendur af um 235 tonnum af gullkarfa, 150 tonnum af ufsa, 96 tonnum af ýsu og 91 tonni af þorski. Verðmæti aflans eru tæpar 350 milljónir og fjöldi kassa er 19.888 stykki.
“Þetta var flottur túr, jöfn veiði framan af og góður lokasprettur í þorski og ufsa.” Sagði Viktoría Jóhannesdóttir, annar stýrimaður. “Við hófum veiðar á Þverálshorni en færðum okkur svo austur á Mýrar og Papagrunn í leit að ýsu. Við enduðum veiðiferðina svo á Halanum þar sem var ágætis veiði í þorski og ufsa. Veðrið lék við okkur allan tímann og potturinn um borð var mikið notaður, áhöfnin var í sumargír.”
Þetta er fyrsta veiðiferðin sem Viktoría fer á Arnari og líkaði henni dvölin um borð vel, enda létt yfir áhöfninni í sumarveðrinu, en hún vill sérstaklega hrósa vélstjórunum fyrir vel unnin störf í þessum túr.