Arnar HU1 heim úr Barentshafi

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki eftir veiðiferð í Barentshaf. Aflinn um borð samsvarar um 945 tonnum upp úr sjó, þar af um 823 tonnum af þorski. Aflaverðmæti er um 315 milljónir.

Heimasíðan hafði samband við Guðjón Guðjónsson skipstjóra og spurði hann um túrinn.

„Haldið var til veiða 8. júní og höfum við verið á veiðum í Barentshafi. Veiðarnar hafa gengið illa miðað við undafarin ár en veðrið hefur verið gott. Það verður landað rétt rúmlega 19.000 kössum,“ sagði Guðjón.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter