Arnar HU1 landaði á Sauðárkróki
Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn um borð samsvaraði um 518 tonnum upp úr sjó, þar af um 223 tonnum af ýsu og 111 tonnum af ufsa. Aflaverðmæti var um 270 milljónir og landað var um 15.000 kössum.