Arnar HU1 landar á Sauðárkróki

 In Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar.

Heildarmagn afla um borð í seinni hluta veiðiferðarinnar var 224 tonn af fiski upp úr sjó, af því voru um 103 tonn af ýsu. Minna í öðrum tegundum.

Heildarverðmæti afla er um 120 milljónir króna og fjöldi kassa um 7.000.

Þetta var seinni löndun veiðiferðarinnar en alls var landað um 676 tonnum af fiski upp úr sjó og kassafjöldi um 22.000.

Heildarverðmæti afla í allri veiðiferðinni er um 290 milljónir.

Start typing and press Enter to search

Drangey