Arnar HU1 landar í Reykjavík

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar í Reykjavík á mánudaginn til millilöndunar. Heildarmagn afla um borð var 425 tonn af fiski upp úr sjó, af því voru um 178 tonn af ufsa og 81 tonn af ýsu. Minna í öðrum tegundum.  Heildarverðmæti afla er um 210 milljónir króna og fjöldi kassa um 12.000.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter