Aukið aðgengi að björgunarvestum

 Í Uncategorized

Á dögunum afhenti FISK Seafood Skagafjarðarhöfnum að gjöf tvo kassa með björgunarvestum. Kassarnir verða staðsettir annars vegar austan við Hafnarhúsið á Sauðárkróki og hins vegar við Hafnarhúsið á Hofsósi. Í hvorum kassa eru 20 björgunarvesti í mismunandi stærðum og eru þau skref í að auka öryggi þeirra sem leggja leið sína niður á höfn. „Með þessu framtaki leggjum við áherslu á aukið öryggi barna og unglinga á höfnunum með bættu aðgengi að björgunvarvestum og þætti okkur vænt um að sjá þau í notkun“ segir Stefanía Sigurðardóttir gæða- og öryggisstjóri FISK Seafood.

Dagur Baldvinsson hafnarstjóra vildi koma á framfæri þakklæti til FISK Seafood fyrir höfðinglega gjöf til Skagafjarðarhafna. „Vestin munu komu sér vel á bryggjunum og viljum við minna á að það er skylda fyrir börnin að vera í vestum meðan þau eru að veiða á bryggjunum, það er of algengt að sjá þau vestislaus. Hafnarstarfsmenn munu vera duglegir að benda krökkunum á vestin og aðstoða þau ef á þarf að halda“.

 

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter