Blíða allan túrinn

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 158 tonn og uppistaða aflans er um 108 tonn af þorski

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðverssons skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum þrjá og hálfan sólarhring á veiðum og vorum á Litlagrunni og Glettinganesflaki. Veiðarnar gengu vel og það var blíða allan túrinn“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter