„Byrjuðum að reyna við steinbít“

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 66 tonn og uppistaða aflans voru ufsi og þorskur. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Kristján Snorrason skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum. Byrjuðum að reyna við steinbít út á Látragrunni, kipptum svo norður fyrir Austur Horn og vorum í sólarhring í ufsarægi. Kipptum til baka út á Látragrunn vegna veðurs en það var norðaustan 20 m/s. Við vorum tvo sólarhringa í rólegri veiði og enduðum túrinn á Herðatré. Veður var gott fyrir utan þennan eina sólarhring,“ sagði Guðmundur.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey