Drangey fer með bryggjuna í Drangey

Sérstök sjón blasti við á Sauðárkrókshöfn í dag þegar togarinn Drangey SK 2 togaði einkennilegan pramma upp í rennuna, sem venjulega geymir troll. En þessi prammi er flotbryggja sem á að koma fyrir í Drangey (eyjunni) fyrir sumarið, eins og önnur ár.

Á myndinni má sjá Viggó Jónsson, frá Drangeyjarferðum, fylgjast með þegar bryggjan er dregin um borð. Viggó mun svo fylgja á eftir á bátnum Hafsól að eyjunni þar sem Drangey SK mun sleppa bryggjunni, enda er ekki togarafært að bryggjusvæðinu þar. Ásamt Viggó fara þeir Eyþór Jónasson, Adomas Drungilas, Óskar Magnússon, Anton Líni Hreiðarsson og Erlendur Bogason kafari til þess að koma bryggjunni fyrir á sínum stað.

Viggó á von á fyrsta hóp ferðamanna í eyjuna strax í næstu viku, en þá er von á skemmtiferðaskipi í fjörðinn. Reglulegar ferðir í Drangey hefjast svo að venju þann 1. júní.

Sumir segja að lóan boði sumarið, en hér í Skagafirði er ekkert sem segir sumar frekar en flotbryggjan á leið út í Drangey!