Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn á sunnudagskvöld. Heildarmagn afla var um 114 tonn, að mestu þorskur en einnig um 12 tonn af ýsu.

Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri, segir þá hafa hafið veiðar á Brettingsstöðum (Langanesgrunni) þar sem var ágætis nudd af fínum þorski. “Síðan versnaði veðrið og við færðum okkur á Digranesflak. Við enduðum svo á Kjölsen (Þistilfjarðargrunni) í frekar rólegri ýsuveiði”.