Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun. Heildarmagn afla í þessari veiðiferð voru um 159 tonn, þar af um 96 tonn af þorski og um 46 tonn af ýsu, en minna í öðrum tegundum.

“Við byrjuðum í Reykjafjarðarál í ágætis kroppi, þar var fínasta blanda af tegundum. Svo færðum við okkur á Strandagrunn og kláruðum þorskskammtinn þar, en þar var þorskurinn að gæða sér á loðnu sem er hans uppáhalds fæða. Við enduðum svo túrinn í ýsu norður af Horni.” Sagði Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri. Hann sagði veiðarnar hafa gengið ljómandi vel og þó að veðrið hafi verið leiðinlegt fyrstu daga veiðiferðarinnar þá hafi það batnað á síðustu dögunum.