Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkróki í morgun með tæp 124 tonn af afla, þar af voru rúm 86 tonn af þorski og rúm 22 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.

“Við byrjuðum á Sporðagrunni, þar fara frekar rólegt, svo færðum við okkur á Strandagrunn þar sem við náðum þorskskammtinum í ágætis veiði. Þvældumst svo um Kögurgrunn, Þverál og Djúpál að leita að ýsu. Það var fínasta veður allan túrinn nema rétt síðustu klukkutímana, landstímið var frekar leiðinlegt.” Sagði Halldór Þorsteinn Gestsson, skipstjóri.