Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun. Heildarmagn afla voru 100 tonn, þar af voru 70 tonn af þorski. Drangey var meðal annars á veiðum við Víkurálsbotn og á Halanum.
“Það var skítabræla í byrjun túrs og lítið um að vera. Svo lentum við í því að fá veiðarfærin í skrúfuna og vorum dregnir inn á Patreksfjörð. Þar voru tveir kafar í því að skera úr veiðarfærin og það gekk nokkuð fljótt. Vanir menn á ferð. En þetta kostaðu okkur rúman sólarhring frá veiðum.” Sagði Halldór Þorsteinn Gestsson, skipstjóri. “Þegar við komumst aftur af stað var komin bræla aftur og við fórum norður á Hala þar sem við kláruðum þorskskammtinn. Svo enduðum við á Skagagrunni þar sem lítið var um að vera”.
Frétt um atvikið var birt á síðu landhelgisgæslunnar og geta áhugasamir skoðað hana hér.