Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkróki í morgun með 140 tonna afla, þar af voru um 66 tonn af þorski, um 48 tonn af ýsu og um 11 tonn af karfa.
Drangey var á veiðum á Látragrunn, Halanum og Deildargrunn.
“Þetta var helvítis brælutúr. Við fórum fyrst suður á Fláka á Breiðafirði og tókum þrjú höl þar í ýsuveiði. Svo kom smá veðurgluggi til þess að fara á Halann í tvo sólarhringa og þar var ágætis veiði. En svo gerði bara vitlaust veður og við fórum norður fyrir og enduðum á því að fara fyrr en áætlað var í land þar sem vindur var kominn í 40 m/s og engin leið að kasta í gær.” Sagði Halldór Þorsteinn Gestsson, skipstjóri.