Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 84 tonn af afla. Þar af voru um 65 tonn af þorski
Að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar, skipstjóra, var þessi túr frekar erfiður. Hann byrjaði á norð-austan brælu og síðan kom suð-vestan bræla. Það hafi verið mjög vont að eiga við þetta, svo loksins þegar lægði kom hafísinn upp í suð-vestan áttinni á Halanum.