Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar á Sauðárkróki í dag. HEildarmagn afla voru um 103 tonn, þar af 65 tonn af þorski og um 17 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.

Drangey var á veiðum frá Þverálshorni og suður á Látragrunn í leit að þorski. En að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar er tregt í þorski núna á Vestfjarðarmiðum, en það er svosem ekki óalgengt að fiskurinn fari á eftir loðnunni upp að fjöru á þessum árstíma. Annars var verðið ágætt hjá þeim í þessum túr nema síðasta daginn.

Þar sem Drangey var úti yfir páskana gerði Jón Sigurjónsson, matsveinn, vel við skipverjana og eldaði reyktan lambahrygg á páskadag sem vakti mikla lukku. Á annan í páskum gerði hann svo djúpsteikta lúðu sem skipverjar voru einnig mjög ánægðir með, svo það ríkti hátíðarandi á miðunum þrátt fyrir að engin páskaeggjaleit hafi farið fram, en skipstjórinn lofaði skipverjum að það myndi ekki klikka á næsta ári.