Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 178 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, eða um 144 tonn. Svo voru um 12 tonn bæði af karfa og ýsu.

Drangey var aðallega á veiðum á Kantinum við Halann, en tók einnig hol á Víkuráli, Tungunni og Reykjafjarðaráli.

Halldór Þorsteinn Gestsson, skipstjóri, sagði túrinn hafa gengið bara ágætlega. “Við byrjuðum í Kantinum í þorski og þar var mjög góð veiði. Færðum okku svo í Víkurál þar sem við tókum einhver tíu tonn af karfa, það var skítaveður þar. Svo fórum við og köstuðum í Pollinum, og þar var líka skítaveður. Enduðum svo á Reykjafjarðaráli og þar var frekar róleg veiði bara en allt í lagi.”

Pollurinn er veiðisvæði út af Ísafirði sem mögulega dregur nafn sitt af sjónum innst í Ísafirði þar sem að heimamenn segja að það sé “alltaf logn á pollinum”. Það er spurning hvort það sama á við um veiðisvæðið, þó svo að það hafi verið einhver ferð á logninu þegar Drangey var á veiðum þarna.