Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom í land við Sauðárkrókshöfn í nótt með 170 tonn, þar af um 78 tonn af þorski, um 60 tonn af ufsa, um 14 tonn af karfa og um 10 tonn af ýsu. En aflinn fékkst á Halanum, kantinum við Halann og á Þveráli.

Þetta er síðasta veiðiferð Drangeyjar fyrir sumarstopp en fyrirhugað er að hún haldi til Akureyrar í kvöld þar sem hún á að fara í slipp til að sinna venjulegu viðhaldi og við megum vænta hennar nýmálaðrar og glæsilegrar heim eftir um það bil mánuð.