Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 123 tonna afla, þar af um 107 tonn af þorski.

“Við hófum veiðar á Brettingsstöðum í blíðuveðri og góðri þorskveiði, þar sem fiskurinn var að gæða sér á síld.” Sagði Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri. “Síðan færðum við okkur á Digranesflak og þar var sama sagan. Svo reyndum við að ná í ýsu á Glettinganesflaki en það var rólegt yfir þeirri veiði.”

Einnig er haft eftir Gústa að fyrsta haustbrælan hafi komið yfir með hvelli, en sem betur fer stóð hún stutt yfir.

Drangey