Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 103 tonn. Aflinn samanstóð af um 89 tonnum af þorski, um 5 tonnum af ýsu og um 5 tonnum af karfa.

Drangey var aðallega á veiðum á Sléttugrunni en kastaði einnig á Rifsbanka.