Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með rúmlega 146 tonna afla sem var að mestu þorskur, eða um 113 tonn af honum. Þá voru um 25 tonn af ýsu en mun minna í öðrum tegundum.
Drangey var á veiðum á Digranesflaki alla þessa veiðiferð, enda ágætis veiði þar og því engin ástæða til þess að vera á flakki.