Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 er á landleið og mun landa við Sauðárkrókshöfn um hádegi. Í skipinu er 96 tonna afli, þar af eru um 84 tonn af þorski og um 5 tonn af grálúðu, en minna í öðrum tegundum.

Drangey var á veiðum á Ostahrygg, Strandagrunni og norður af Kolbeinsey.