Drangey SK 2 landar í Grundarfirði

Drangey SK 2 kom til löndunar í Grundarfirði með 80 tonna afla, þar af 31 tonn af þorski, um 30 tonn af steinbít og um 10 tonn af ýsu, þetta var seinni löndun fyrir þennan túr og samtals taldi aflinn þá um 160 tonn.

“Það var ágætis veður og veiði fyrir millilöndun, en í seinni hluta túrsins var bara frekar léleg þorskveiði og bræla meira og minna allan tímann. Fór upp í 30 m/s í gær.” Sagði Halldór Þorsteinn Gestsson, skipstjóri.

Drangey var aðallega á veiðum á Látragrunni en tók eitt hal á Flugbrautinni í lokin, þar sem var ekki mikið að fá. En Flugbrautin er veiðisvæði beint vestur af Snæfellsnesi. Fréttaritari spurði tvo þaulreynda skipstjóra, auk Halldórs, þá Björn Jónasson (f. v. skipstjóra á Málmey) og Gylfa Guðjónsson (f.v. útgerðarstjóra), hvort þeir vissu hvaðan nafngiftin kæmi og þrátt fyrir að vera ekki vissir giskuðu þeir á það væri einfaldlega vegna þess að botninn þarna er alveg rennisléttur, líkt og flugbraut.

Drangey

UMHVERFIS-
DAGUR