Drangey SK 2 landar í Grundarfirði

Drangey SK 2 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær með 200 tonna afla, þar af um 97 tonn af ýsu, um 40 tonn af þorski og um 39 tonn af ufsa.

“Við hófum veiðar á Eldeyjarbanka og færðum okkur síðan á Selvogsbanka þegar hrygningarfriðun var aflétt kl 10:00 þann 21. apríl. Þar var fínasta veiði af blönduðum afla, ýsu, ufsa og þorski. Þegar leið á virtust þorskurinn og ufsinn hverfa, en ýsan jókst í staðinn.” Sagði Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri. Hann sagði veðrið hafa verið gott, enda væri komið sumar.

UMHVERFIS-
DAGUR