Drangey SK 2 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með rúmlega 81 tonn af afla, þar af um 60 tonn af þorski og um 11 tonn af ýsu, allt fengið við Látgragrunn. Drangey heldur aftur til veiða í dag til þess að klára túrinn og er væntanleg í land á Sauðárkróki á mánudag.