Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki.

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki með 172 tonn, af því voru um 138 tonn af þorski, 13 tonn af ýsu, 10 tonn af ufsa og 3 tonn af karfa. Aflinn veiddist meðal annars við Digranesflak og Brettingsstaði. Skv. upplýsingum frá Snorra Snorrasyni skipstjóra gengu veiðarnar vel og veðrið var nokkuð gott í túrnum.

Áætlað er að Drangey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter