Drangey SK2 landar á Sauðárkróki
Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki með 159 tonn, af því voru um 117 tonn af þorski, 15 tonn af ufsa, 13 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Drangey hefur verið á veiðum við Ostahrygg, Tunguna og Nýjagrunn.
Áætlað er að Drangey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.