„Viljum alltaf meira“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 130 tonn, uppistaða aflans var þorskur og karfi.  Drangey var meðal annars á veiðum í Strandagrunni. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra og spurði nokkurra spurninga um túrinn.

„Við vorum fimm daga á veiðum og höfum verið við Víkurál, Halanum, Strandagrunni og á Hornbanka. Veiðarnar hafa gengið þokkalega en við viljum alltaf meira. Það var blíðuveður allan túrinn,“ sagði Ágúst.

 

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter