Drangey SK2 með fullfermi.
Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 220 tonn. Uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan sló á þráðinn til Bárðar Eyþórssonar skipstjóra.
„Við vorum að veiðum í fjóra sólarhringa, byrjuðum á Halanum fyrstu tvo dagana í rólegri veiði. Færðum okkur yfir á Þverálinn þar var mjög góð veiði. Veðrið í túrnum var gott“ segir Bárður.