„Enduðum í mokufsaveiði“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 147 tonn og uppistaða aflans var ufsi. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Flugbrautinni, Skerjadýpi og Fjöllunum. Veiðarnar fóru rólega af stað, líði í djúpkarfanum og rólegt í ufsanum til að byrja með, enduðum í mokufsaveiði á Fjöllunum. Við fengum tvo sólarhringa með leiðindaveðri en þokkalegt í restina,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter