„Engin kraftveiði“
Farsæll SH30 er á leið til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð er um 40 tonn og uppistaða aflans er steinbítur og ýsa. Heimasíðan hafði samband við Stefán V. Ólason stýrimann og spurði út í túrinn.
„Þessi veiðiferð var um fimm sólarhringar og fjóra af þeim vorum við á veiðum. Lengst af vorum við á veiðum úti á Agötu en færðum okkur svo upp á Flákann þegar veðrið fór að versna. Það var engin kraftveiði í þessum túr. Það var norðan og norðaustan kaldaskítur allan túrinn,“ sagði Stefán.