„Engin kraftveiði“

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 er á leið til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð er um 40 tonn og uppistaða aflans er steinbítur og ýsa. Heimasíðan hafði samband við Stefán V. Ólason stýrimann og spurði út í túrinn.

„Þessi veiðiferð var um fimm sólarhringar og fjóra af þeim vorum við á veiðum. Lengst af vorum við á veiðum úti á Agötu en færðum okkur svo upp á Flákann þegar veðrið fór að versna. Það var engin kraftveiði í þessum túr. Það var norðan og norðaustan kaldaskítur allan túrinn,“ sagði Stefán.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter