Farsæll landar í Grundarfirði.

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði með 54 tonn, af því voru um 18 tonn af þorski, 13 tonn af ýsu, 5 tonn af karfa og 2 tonn af ufsa. Minna í öðrum tegundum. Farsæll var á veiðum við Látragrunn og á Vestfjarðarmiðum í hvassri austan átt og gengu veiðarnar frekar rólega.

Áætlað er að Farsæll haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter