Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með rúmlega 71 tonn af afla. Þar af voru rúm 22 tonn af skarkola, tæp 20 tonn af þorski og rúm 11 tonn af steinbít en minna í öðrum tegundum.

Farsæll var aðallega á veiðum við Flökin.

“Þessi túr var bara eiginlega nákvæmlega eins og síðasti túr. Gekk mjög vel, fín og jöfn veiði og við náðum slatta af kola. Veðrið var mjög gott, maður hélt bara að það væri komið vor, þar til rétt í lokin en það var komið leiðindaveður á heimstíminu.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri.