Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær með 46 tonna afla, þar af um 25 tonn af þorski og um 12 tonn af ýsu.
Farsæll var meðal annars á veiðum við Suðurkant og Flökin.
“Þetta var nú endastuttur túr, ég held við höfum verið einn og hálfan sólarhring á veiðum.” Sagði Jóhann Garðarsson, skipstjóri. “Við fórum út á miðvikudag og komum aftur í land á fimmtudag vegna veðurs. Vorum heima í 2 daga og fórum aftur út á laugardeginum. Þá var allt breytt eftir bræluna, ýsan farin og allt búið að fyllast af þorski, en við vorum ekki í leit að þorski í þessum túr.”
Nú er Farsæll kominn í páskafrí í hálfan mánuð og mun halda aftur til veiða í vikunni eftir páska.