Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom í land í Grundarfirði í gær með 73 tonn af afla, þar af um 24 tonn af steinbít, um 22 tonn af þorski og um 11 tonn af ýsu. Farsæll var meðal annars á veiðum á Grunnkanti og Vestan við Bjarg.

“Þetta gekk bara ljómandi vel. Við byrjuðum suð-vestan við Bjarg og héldum okkur svo þarna í kring, á Grunnkanti og vestan við Bjarg. Það var fín veiði í steinbít. Veðrið var þolanlegt til að byrja með en það var komið skítaveður síðasta sólarhringinn.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri, ánægður með að vera farinn á sjó aftur eftir páskastopp.

UMHVERFIS-
DAGUR