Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með um 75 tonn af fiski, þar af um 26 tonn af karfa, um 21 tonn af ýsu og um 19 tonn af þorski.

Farsæll var meðal annars á veiðum í kringum Bjarg og á Jökultungu.