Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom í land í gærkvöldi við Grundarfjarðarhöfn og verður landað úr skipinu í dag. Farsæll var með um 67 tonn af fiski, þar af um 26 tonn af ýsu, um 17 tonn af þorski og um 12 tonn af karfa.

Farsæl fór nokkuð víða í þessum túr og kastaði meðal annars á Bervík, Grunnkanti og Agötu. Agata er vel þekkt nafn á steinbíts- og karfa veiðisvæði rúmlega 50 mílur vestur af Látrabjargi. Það eru til ýmsar sögur af því hver þessi Agata er en Svavar Benediktsson, fyrrum skipstjóri á Guðsteini SK, segir í Fiskifréttum (48. tbl 2002) að rétta sagan sé svona:

Árið 1974 voru smíðuð 4 systurskip í Gdynia í Póllandi, þau Engey RE, Ver AK, Guðsteinn GK og Hrönn RE og þegar íslensku skipstjórarnir fóru að sækja skipin fengu þeir inni, hver á eftir öðrum, í íbúð hjá fyrrum verksmiðjustjóra í skipasmíðastöðinni sem var eindreginn komúnisti og hafði unnið sér það til frægðar að vera sæmdur heiðursmerki fyrir vasklega framgöngu gegn þjóðverjum í seinni heimstyrjöldinni. Í íbúðinni bjó einnig kona hans og ung dóttir þeirra, Agata. Agata var líklega rúmlega tvítug að aldri og hin föngulegasta stúlka, prúð, settleg en ákaflega feimin.

Haft er eftir Svavari að hann og Skipstjórinn á Veri AK hafi verið að þvælast djúpt vestur af Látrabjargi þegar þeir hafi fundið þessa þúfu sem gaf töluvert góða veiði og datt þeim þá í hug að skýra svæðið eftir stúlkunni prúðu í Póllandi.