Farsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með 70 tonna afla. Þar af voru um 23 tonn af ýsu, um 19 tonn af þorski og um 13 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum. Farsæll hélt sig að mestu á Flökunum en tók einnig nokkur hol á Flákakanti og í kringum Bjarg.