Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með rúm 60 tonn, þar af voru rúm 22 tonn af ýsu, rúm 16 tonn af þorski og tæp 9 tonn af karfa. Farsæll hóf veiðiferðina á Flákakanti, en fór víða og kastaði meðal annars við Flökin, á Skápnum og Löngu Lænu.
“Maður er bara hálf feginn að þessi túr er búinn.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri. “Hann byrjaði með hasar, við vorum ræstir af stað eldsnemma til þess að sækja Sigurborgu SH 12 en það hafði orðið bilun hjá þeim, svo við drifum okkur af stað og náðum að draga hana í land. Svo héldum við aftur út en veiðin var frekar tíðindalítil, en slapp til.”
Þess ber að geta að búið er að gera við bilunina hjá Sigurborgu og hún er haldin til veiða á ný.