Farsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með 64 tonna afla. Þar af voru um 20 tonn af ýsu, um 16 tonn af karfa og um 13 tonn af þorski en minna í öðrum tegundum. Farsæll hélt sig að mestu á Flökunum en tók einnig nokkur hol á Herðatré og í kringum Bjarg.