Farsæll SH 30 kom til löndunar með um 47 tonn af fiski við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Aflinn skiptist í um 17 tonn af ýsu, um 14 tonn af karfa, um 7 tonn af skarkola og um 4 tonn af þorski.
Farsæll hóf túrinn vestan við Garðsskaga, tók svo meðal annars hol á Jökultungu, Agötu og Herðatré og endaði á einu holi á Skápnum.