Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með um 53 tonna afla. Mest var af þorski eða um 18 tonn af honum, þá voru um 16 tonn af ýsu og um 9 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum.
Farsæll hóf veiðiferðina við Búrbanka í ýsu en færði sig svo yfir í Holuna þar sem gafst meira af þorski. Þá kastaði Farsæll á Grunnkanti og endaði túrinn á kunnuglegum slóðum á Herðatré.