Farsæll SH30 er á leið í land.
Farsæll SH30 er á leið í land í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð er um 74 tonn, uppistaða aflans er að mestu ufsi, þorskur og skarkoli. Veiðiferðin tók fimm daga höfn í höfn, en Farsæll var fjóra daga á veiðum í Nesdýpi og út í Kant. Veiðarnar gengu þokkalega, og veðrið var ágætt.