Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði með 51 tonn af því voru um 19 tonn af þorski, 15 tonn af skarkola, 10 tonn af steinbít og 4 tonn af ýsu. Minna í öðrum tegundum. Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi.
Áætlað er að Farsæll haldi aftur til veiða að löndun lokinni.