Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði fyrir helgi. Heildarmagn afla um borð var um 65 tonn, uppistaða aflans var þorskur, ýsa og karfi. Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi.