Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði með 52 tonn, af því voru um 12 tonn af þorski, 14 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Farsæll var á veiðum á Breiðafjarðarmiðum í norðaustan kalda og gengu veiðar rólega.

Farsæll er komin í jólafrí og heldur aftur til veiða eftir hátíðarnar.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter